Það er kyrrlátt kvöld við fjörðinn...

28. október 2009 klukkan 17:31
...og ég er byrjuð að hlusta á jólalög. Ég ætti að skammast mín. En ég hlusta bara í laumi, þegar enginn sér. Þá telst það ekki með. Þetta er svona svipað lögmál og með nammi. Ef enginn sá mann borða nammið þá telst það ekki með. Ég er algjörlega sannfærð um það!

Þessi skrif eru tileinkuð elsku Nönnu sem flúði land fyrir bráðum ári síðan.

Ég er að lesa (ath lesa í þetta skiptið, ekki skoða) bók um CBT. Eða "Using Cognitive Behavioural Therapy in General Practice - The 10 Minute Consultation", fyrir ykkur sem finnst áhugavert að vita nákvæmlega hvað ég er að lesa. Þetta er ekki fml bók eins og ég var búin að ákveða í gær. Í raun er þetta mjög góð bók. Við erum að spá í að fara að nota CBT á okkur sjálf. Og kannski ég noti þetta líka á grunlausa vini mína. Það er góð hugmynd. Þá mun ég mögulega ekki líta út eins og asnaprik í næstu viku þegar ég fer að tala við sjúklinga og horfa á samtalið á vídjó á eftir. Vídjó. Það á að taka þetta uppá vídjó. Díses kræst. Alvöru!
Svo er líka PBL í næstu viku, sem lesist á góðri íslensku sem "House-leikur" (House as in the TV show). Það verður 'sm!

Ég er orðin fræg. Myndavélarnar elta mig útum allt. Þær eltu mig á hótel Nordica fyrir rúmri viku og í fyrradag á McDonalds. Fyrir það er ég mjög þakklát. Ehe. Svo var líka myndavél að snuðra í kringum mig á 1.hæð Læknagarðs um daginn. Þetta er eitt stórt samsæri!
 
Þetta eru ekki jafn áhugaverð skrif og þau áttu að vera. Líf mitt er miklu meira spennandi en þetta gefur til kynna. FML hefur staðfest það. Sorry Nanna. En þetta verður að duga í bili þar sem ég er alveg að missa af strætó.
 
Nanna
Ehe, jah sko allt í lagi;) Ég samt flutti fyrir meira en ári síðan sko;)
#1
29. október 2009 klukkan 12:02
 
Kolfinna
Er það? Fórstu ekki um áramótin síðast? Eða rétt eftir áramót?
Nei já alvegrétt, þú varst í lýðháskólanum fyrst:)
#2
29. október 2009 klukkan 12:25
 
Nanna
Iff Kolfinna! ... ;)
Já akkurat
#3
29. október 2009 klukkan 12:46
 
Kolfinna
Hehe. Ég mundi bara svo vel eftir því þegar þú varst að flytja í janúar og varst eitthvað að vinna í PogP þá og talaðir um að það tæki sig varla að vinna hér útaf genginu...
Gat hinsvegar fyrst ekki munað hvað þú varst að gera um haustið. Lúði ég;)
#4
29. október 2009 klukkan 16:27

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Háskóli Íslands

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...