Youtube...

30. október 2006 klukkan 16:23
Eins og þeir sem hafa lesið bloggið hennar Nönnu vita, þá vorum við að leika okkur í myndbandagerð. Sem sagt ég, Nanna og Kolfinna. Á föstudaginn vorum við að gera viðtöl og eitthvað, allt á ensku... Ég er ekki alveg viss af hverju við byrjuðum að gera þetta á ensku en það bara kom einhvernvegin. Það var líka miklu meira stuð held ég en ef við hefðum gert þetta á íslensku. Á laugardaginn tókum við svo upp einhverja brandara á ensku, teknir af síðu sem heitir Really Bad Jokes, sem ætti að segja sitt um gæði brandaranna. ;) Þeir voru nú samt frekar fyndnir flestir, bara svona frekar misheppnað fyndnir... Hér eru tvö dæmi af brandara sem eru teknir af þessari síðu, en ekki taldir nógu góður til að komast að í myndbandinu...

Why did the banana put on sun-tan lotion?
To keep from peeling.

What did one plate say to the other?
Lunch is on me.

Já, þvílíkir gæðabrandarar. Svo settum við þetta inná youtube og afrasksturinn má sjá hér. Þegar við vorum búnar að ýta á upload takkann urðum við Nanna undarlega stressaðar með þetta. Ég meina, það geta ALLIR séð þetta... Æi, þetta reddast maður. Þegar þetta var komið inn fórum við að leita að þessu. Það er hægt að klikka á svona recent videos og okkar kom ekkert þar inn. Svo fórum við í search og notuðum orðin sem við skrifuðum við, en það kom ekkert nema einstaka íslenskur brandari, eins og t.d. Silvía Nótt... Eina leiðin til að finna myndbandið var að fara inn á accountinn okkar og fara í my videos...

Í gærkvöldi var ég svo að skoða á youtube. Var að skoða einhverja íslenska brandara og þá kom þetta upp á bls. 2 :) Yess, maður þetta er þá þarna... Sem er ákveðinn plús... Hihi.

Annars er allt hægt að finna á youtube, m.a. er þarna auglýsing sem einhverjar íslenskar stelpur hafa gert í einhverju flippi um pítusósu... Það er ... ehem, áhugavert... To say the least. Hehe.

Heyrðu, ein mjög merkileg staðreynd... Ég er að blogga og ég er EKKI í tíma!! Hversu mikil snilld er það? ;) ;) :Þ

Ok, ég ákvað að láta þessa "skemmtilegu" mynd fylgja með... Mér finnst hún fyndin, veit ekki hvað ykkur finnst... :Þ

Múhahaha

Hihihi
Inga

Kvađratrćtur???

27. október 2006 klukkan 00:17
Jæja já, þá er ég komin með nemanda. Ji, ég er strax orðin stressuð... Þannig er mál með vexti að farðir einn sem ég man ekki nafnið á hringdi í mig í dag til að forvitnast um þessa stærðfræðikennslu. Guð, ég vissi ekkert hvað ég átti að vera að segja... en já, stúlka ein úr krílabekknum mun hafa samband við mig á næstu dögum... Ætli sé þá ekki best að fara að rifja upp kvaðratrætur? Stæ 103? Er það eitthvað sem þarf að rifja upp? Ég er ekki viss.... Það kemur í ljós, en eitt er víst, þetta verður skrítið.

Allt í einu langar mig svakalega mikið í kort á Bjargi... eitthvað sem ég hafði enga löngun í fyrir 3 vikum, og nú þegar mig langar þá einhvern veginn kemst ég ekki alltaf þegar ég ætla... ég er sko búin að plana að fara 3 eða 4 sinnum í svona blessaðan prufutíma en án árangurs.... Þetta hlítur að fara að takast...

Ég er farin að vera fastagestur í mötuneyti vistarinnar... eða "fastagestur", búin að fara þangað 3x síðustu 2 daga og mun að öllum líkindum fara 2x á morgun... Fyrir mig er það að vera fastagestur, ég var ekki búin að labba inn í matsalinn í heilt ár fyrir þessa viku....

Mig langar geðveikt að sjá Mýrina... er bara búin að heyra að hún sé frábær! Mig langar á morgun... Það er bara svo helvíti dýrt!

Hehe við vorum að teikna kennara áðan niðrí M9.... Hver er þetta /l/l/l ???;)



Þessi mynd er nottla bara geðveik! Pure icelandic ik?;)

Óver and át...
Kolfinna

Naturellllll

25. október 2006 klukkan 19:35

Þar sem ég bloggaði ekki í síðasta íslensku tíma og brást þar með einlægum aðdáendum ;) þá ákvað ég að blogga í náttúrufræði í staðinn :D Er það ekki bara fínt?

Úff það er erfiðara að blogga í náttúrufræði en íslensku...  Það er miklu meira að glósa hérna.

Hehe, fann þessa síðu. Setijið inn fæðingardag ykkar og ýtið á fánana. Sjáið svo hvaða lag var í fyrsta sæti á fæðingardag ykkar í UK eða USA. Allir að prufa og setja svörin inní komment :) Mitt var:

US: Guns 'n' Roses - Sweet Child o' Mine
UK: Phil Collins - Boogie Kind of Love

Mjööööög áhugavert, ekki satt? ;)

Við tókum smá krakkamóment áðan. Erum reyndar ennþá að því. Erum sko að skrifa miða til hvorrar annar..a...r? Öhm, já hérna sko, vá hvernig segir maður þetta? Hvor annara annarrra hvorrar annarrarrrrrrr.... Allavega, erum að skrifa miða. Ekki sérstaklega innihaldsríkir neitt. Bara svona wazzzupp, og how's it hanging? I keep trying to die but they won't let me... Hehe. Hver veit hvaðan þetta er? Sigrún, Nanna og Snæfríður (held ég) mega ekki giska :) Jájá, núna erum við að tala um Nana. The Nana... Mikið í gömlu fólki á þessum miða... Voðalega er þetta áhugavert hjá mér...

Held að ég ætti ekki að skrifa neitt meira... Þetta fer bara út í eitthvað bull held ég... Doh, I'm leaving...

Chiao
Inga

Kennaratyggjó?

23. október 2006 klukkan 00:58

Ok, ég hef pælt í þessu örugglega milljón sinnum. Hvernig segir maður 'kennaratyggjó' á ensku? Í alvörunni, ég hef ekki hugmynd. Engin af orðabókunum mínum veit það og það gengur heldur ekkert að googla þessu. Ég skil þetta ekki! Mamma kom auðvitað með klassísku uppástunguna: 'Teachers'-chewing-gum' ... Flott orð, en ekki alveg sannfærandi. Ég fór svo og grandskoðaði pakkann sem kennaratyggjóið mitt er í. Þar stendur 'hæftemasse', 'häftmassa' og 'kiinnitystarra'... Ekkert á ensku. Það stendur mjög góð lýsing á ensku neðst á pakkanum hvað kennaratyggjó er, en ekki hvað orðið yfir það er. Ég fatta þetta bara alls ekki.


Hvað er málið?!?!?


Það er reyndar ekki eins og þetta sé eitthvað agalega algengt orð sem maður notar á hverjum degi, en ég hef rekist á að ég veit ekki hvað orðið er allavega 1000 sinnum á lífsleiðinni. Ef ekki oftar. Og aldrei kemst ég að því hvað í ósköpunum þetta er. Er eiginlega að hugsa um að fara bara í afneitun og segja að þetta sé bara ekki til í Englandi. Þau nota bara límband... Right. Hmmmm... Reyndar núna þegar ég fer að pæla í því þá man ég ekki eftir því að hafa séð kennaratyggjó þegar við vorum þar í sumar, en við vorum líka ekki að hengja neitt upp.


Ef einhver, og þá meina ég hver sem er, veit, eða hefur einhverja sniðuga uppástungu, þá endilega deiliði því með mér. Ég er að verða brjáluð hérna. Þetta er alveg endalaust pirrandi.


Hehe, Nanna er orðinn fastagestur í bloggunum mínum... Allavega, hún er alltaf að horfa á Boogie listann sinn (sem er danskur topptónlistarlisti, fyrir ykkur sem vita það ekki...) og kemur með alveg brilliant hugmyndir af lögum til að downloada. Ég náði í 10 eða 15 lög síðast, öll af þessum lista. Núna er ég einmitt með þónokkur dönsk rapplög í iPodnum mínum... Geggjað svöl sko ;) Og ég fer alltaf að brosa þegar ég heyri þau af því að mér finnst svo fyndið að hlusta á dönsk (rapp)lög.


Ég er líka komin með nokkur þýsk lög með hljómsveitinni Tokio Hotel. Þetta eru einhverjir strákar, tvíburar sem eru 17 ára, einn sem er 18 og einn 19. Persónulega þá finnst mér söngvarinn alveg helvíti hott, en það eru mjög skiptar skoðanir um það... Hérna er myndband við lagið Rette mich sem var einmitt á Boogie listanum...


http://www.youtube.com/watch?v=KuGAsskv6NY

Ok, gaurinn lítur svolítið út eins og stelpa, en samt! Meira að segja þegar ég komst að því að hann heitir Bill, þá var ég ekkert sannfærð. Eins og sést á kommentunum fyrir neðan þá eru mjög skiptar skoðanir á því hvort að hann sé flottur eða ekki. Og líka á því hvort að þetta sé strákur eða stelpa... Mér finnst hann líka líkjast Björk í byrjuninni á myndbandinu... Er það bara ég eða? Það eru söngvarinn og gaurinn með dreddana sem eru tvíburar ef einhver var að pæla í því...

Ég held að það sé komið nóg í dag :)
Inga

P.S. Ef enhver tók ekki eftir því þá breytti ég bannernum... ;)

Yo peeps

20. október 2006 klukkan 16:59
Eins og áður sagði þá ætlaði ég að blogga aftur í íslensku. Þannig að ég geri það hér með. Það er alltaf gaman. Íslenska er svo góður bloggtími. Við erum að lesa ljóð sem heitir Búnaðarbálkurinn. Það er gjarnan spurt um hann á prófi... Gott að vita það.

Ég var sko að pæla í því að blogga bara um þennan tíma, svona hvað við erum að gera og svoleiðis, þannig að það er eins gott að Stefán Þór eða Nanna segi eitthvað skemmtilegt. Allar mínar vonir eru bundnar við þau ;) Nanna segist vera of þreytt til þess... Við sjáum nú til með það...

Hehe, bæði Nanna og Sigrún héldu að Stefán hefði sagt að ljóðið, Búnaðarbálkurinn, héti Búnaðarbankinn. Oh, það verður eitthvað skemmtilegt að gerast. Pottþétt af því að ég valdi þennan tíma þá gerist ekki neitt. Þá verður þetta bara leiðinlegt blogg...

Það er eitthvað fyndið. Herdís henti símanum sínum í gólfið og hún og Ragna voru að hlæja og enginn fattaði af hverju. Stefán sagðist bara vera saklaus. Svo kom þetta í ljós, ég held að hún hafi hent honum í gólfið af því að hann var að hringja. Síminn sko, ekki Stefán...

Úps, barn hér, úps barn þarna. Jón Þorláksson var alltaf að eignast börn út um allt. Varð víst orðinn eitthvað pirraður út af því. Eins og Herdís orðaði það, "Af hverju sleppti hann því þá ekki að stökkva á allar konur sem hann sá? Til hvers var eiginlega konan hans?" Hann hafði tíma til að þýða einhverjar bækur á milli þess sem hann ... synti skyldustörfum sínum ...

Stefán er að tala við sjálfan sig. Stelpurnar í 1.-E eru duglegar við að drekka. Það eru sko veggspjöld hérna í H9 og hann var að skoða þau. Hann tók líka upp á því í H6 einhvern tíman. Fór og talaði við veggspjöldin.

Frímínútur...

5 mins later

Jæja, Stefán kominn aftur, best að halda áfram að blogga.

Erla þarf að leita að straumunum... Hún fann þá ekki strax... Det er nu det, sagði Stefán. Við lærðum um muninn á því að vera daðrari og flagari. Mjög áhugavert. Ef maður er flagari þá flekar maður þá sem maður daðrar við, en ef maður er daðrari þá daðrar maður bara. Stefán er víst daðrari, en ekki flagari...

Hmmm... Við erum byrjuð að tala um Guð. Hann heitir Guð. Hver? Guð... Hehe Ragna gáfaða og Nanna snillingur :) Ok, við erum að pæla hvort að maður skrifar Guð eða guð. Lítill eða stór stafur. Voðalega er þetta áhugavert. Eða þannig... Jájá, endilega tölum um eitthvað annað. Stefán þakkar auðsýnda þolinmæði og skilning í garð námsefninsins. Við höfum staðið okkur mjög vel og sýnt efninu um lærdómsöldina áhuga, að allavega reynt það...

Stefán fer hraðar en Sigrún ræður við.

Snæfríður var töfrakona. Nei, hún var tötrakona. Úps. Okkur Nönnu fannst báðum að það stæði töfrakona... Nanna er að tala um Bella Martha. Myndin sem við horfðum á í þýsku. Hún missti af því þegar systirin dó, sem var aðalpointið í myndinni. Samt ekki, en ef hún hefði ekki dáið þá hefði ekkert að þessu gerst. Hún var svo eitthvað að rugla þessu saman við danskt barnaefni.

Rúsínur *krll* Ok, ég kann ekki að skrifa þett hljóð...

"Mætið með Íslandsklukkuna og veriði búin að borða" Góður endir á tíma... Hahaha, Stefán er svo svangur að hann hljóp næstum því út... Ég og Nanna hlógum frekar mikið að því.

Ingas

Nanna count: 7

1500... úúú

20. október 2006 klukkan 04:16

Hver verður gestur númer 1500???

Sá hinn sami er vinsamlegast beðinn um að gefa sig fram hérna:) Hann/hún/það verður sérstakur heiðursgestur á kiss plánetunni okkar Ingu.... (Inga manstu eftir henni, myndmennt í 4.bekk;)

Haldið samt áfram að svara síðasta bloggi.... ég bara fékk allt í einu þörf fyrir að vita hver sá/sá/það heppni/heppna verður....;)


Gói mói spói gjói tói sljói......

Góðað ríma er það ekki?


Hver er núner 1500???

Ég var númer 1498....

Kolfinna

Bannerakönnun...

19. október 2006 klukkan 23:18
Hehe, þa er nú bara húmor að hafa þessa mynd sem banner í smástund... Allir, og þá meina ég ALLIR, kommenta og segja hvað þeim finnst ;) Ég ætla sko ekki að hafa hana neitt lengi, nema náttúrulega ef hún verður eitthvað instant hit ;)

Annars er svo íslenska á morgun, þannig að flott og gott blogg ætti að koma þá :)

Comment people!
Inga

Meiri íslenska...

17. október 2006 klukkan 15:54
Já, ég held að ég ætli að taka upp á því að blogga alltaf í íslenskutímum... Það er stuð sko. Já, ég var að kommenta hjá Nönnu áðan og Stefán Þór var eitthvað að labba bakvið okkur og svo kom hann og stökk á Nönnu til að sjá hvað við vorum að gera. Það var geðveikt fyndið :) Okkur brá. Æi, Nönnu brá faktist ikke... Eins og hún orðaði það. Ok, en mér brá allavega. Þetta var bara fyndið.

Hmmmm... Hvað ætti ég að blogga um? Já, vúhú það er árshátíð hjá Húsó um næstu helgi :) Ég er nú bara byrjuð að hlakka til sko, verður örugglega geggjað stuð. Vona það allavega. Ég þarf reyndar að vinna á laugardaginn en það er bara til tvö, svo á ég flug suður klukkan 15:20. Ókeypis. Allt ókeypis. Af því að Húsasmiðjan er 50 ára í ár. Ég á svo flug til baka á sunnudaginn kl. 11:00... Á maður að vera vaknaður þá ef maður var á árshátíð kvöldið áður??? Ég bara spyr. Hljómsveitin sem verður heitir Eðlan... Það eru víst einhverjir gaura úr Írafár eða eitthvað svoleiðis. Mér finnst þetta nú ekki virka skemmtielgt... Silja, systir hennar Nönnu, sagði samt að þeir væru góðir. Ég held einmitt að þetta sé eitthvað sem krökkum finnst skemmtilegt. Jæja, við sjáum til.

Úúúúúú svo er DeppMA vaka í kvöld :D Hlakka til. Horfum á The Libertine. Eða heitir hún bara Libertine? Eða Libertines? Guð minn góður, ég hef ekki hugmynd. Alla vega, ég hlakka til :) Úff þetta er líka örugglega vitlaust stafsett. Æi, don't shift a case ;) Það verður gaman, kynlífsóður Johnny Depp... Það ætti að vera gaman ;) Hehe.

Nanna (og ég) heldur að Stefán Þór sé öfundsjúkur út í okkur. Hann spurði hvað væri alltaf svona gaman hjá okkur. Hehe, við vorum að skoða myndir af Nönnu og Kolfinnu síðan á laugardaginn. Þær voru fyndnar.

Ok, núna ætla ég að halda áfram að glósa...

Wish me luck ;)
Inga


P.S. Nanna: "Það er gaman að vera undir borði í tímum"

Harđfiskur...

13. október 2006 klukkan 16:55
Ég er í íslensku...

Það er svosem fínt, en mér leiðist og Nanna kom með þessa snilldarhugmynd að blogga :) Hehe, svona er Nanna okkar nú sniðug.

Þetta verður nú samt ekkert merkilegt blogg neitt...

Ég var eitthvað að skoða í tölvunni minni og rakst á þetta skemmtilega skjal sem ber nafnið:

How to eat dried fish

In Iceland, dried fish was used pretty much instead of bread until the 20th century. Dried fish is often eaten in celebrations days of “þorrablót”, an old habit since 900 where Icelandic Vikings prayed for the Gods Odinn and Thor.  


Steps

 1. Take a piece of dried fish2. Take “smjör”, the usual Icelandic butter, or a substitute3. Use the fish like a spoon and dip it into the butter4. Rip off a bite and chew for a while5. Voila! You have successfully eaten a piece of traditional Icelandic dried fish! 

Tips
 
·          The dried fish is called “harðfiskur” in Icelandic
·          The “ýsa” and “steinbítur” are good with butter but it is not necessary to use butter with “steinbítur” since that fish is really fat. Many Icelandic people do not use butter.

·          You can boil Icelandic dried fish. It is a tradition in the Westfjords of Iceland. You usually just boil “steinbítur” and the meal is called “Gúlaður steinbítur”.


Já, auðvitað er þetta náttúrulega nausynlegt fyrir alla útlendinga að kunna. Það er enginn maður með mönnum nema hann kunni að borða íslenskan harðfisk! :) Mér fannst þetta frekar fyndið þegar ég las þetta á sínum tíma. Það er reyndar frekar langt síðan það var en þetta fær mig samt ennþá til að brosa þegar það er svona langt síðan ég las þetta síðast.

Ú, ég og Sigrún erum að fara að hjóla yfir gömlu brýrnar á eftir. Búið er að bjóða fleirum, en ég veit ekki hvernig mætingin verður. Ætlum að taka með okkur nesti og kakó og svona og hafa svaka gaman. :D Víhí. Ég er bara farin að hlakka til. Svo förum við í leikhús í kvöld, á eitthvað sem heitir Mike Attack. Hef ekki hugmynd um hvað það er, eða um hvað það er... Hmmm... Ég verð að muna eftir því að fara og ná í miðann minn... Allavega, á morgun þarf ég svo að vinna og svo ætla ég að gera eitthvað skemmtilegt með Nönnu (fleirum er alveg velkomið að koma...) og um kvöldið er planið að fara í bíó á The Devil Wears Prada. Það mega líka fleiri koma þangað... Allir að muna að skrá sig ;) Hehe, nei, það er ekki nauðsynlegt.

Ok, núna er tíminn búinn og ég er búin að útlista plönum helgarinnar, þannig að ég ætla að fara...

See y'all
Inga

Die Windstille vor dem Sturm...

10. október 2006 klukkan 21:47
Ég ætla að tileinka þessa viku logninu á undan storminum. Samt er alls ekki lítið að gera, það er alveg nóg sko. En jiminn, allt í einu erum við að fra að gera fyrirlestur í íslensku og vísindaensku, við eigum að skila líffræði ritgerð eftir 3 vikur, í næstu viku eru BÆÐI stærðfræði OG efnafræðipróf, og svo eigum við að vera búin með Íslandsklukkuna sem fyrst því að það verður tímaritgerð upp úr henni eftir 3 vikur.... ég er rétt búin með fyrsta hlutann sko. Ætli Brynjólfur vilji ekki vera með í þessu og skelli á okkur prófi á næstu dögum... það væri sko hryllilegt!

Ji minn... ég hef ekki verið að njóta síðustu vikna nógu vel....

Hehe, annars var ég að heyra allsvakalegar lýsingar á því í dag hvernig það væri að dreyma stærðfræði.... Hehe það var skondin heyrn:) Heppin ég að hafa ekki lent í því, allavega ekki ennþá...:þ

Það er kvöldvaka á fimmtudaginn. Vúhú:)

Það er orðið allt of kalt úti, og bara almennt. Það er orðið svo erfitt að fara á fætur á morgnanna því það er svo kalt inni hjá mér, en það er svo hlýtt og svo kósí undir sænginni... kannski ég ætti að hækka hitann á ofninum?

Jisús, það er byrjað að snjóa úti.....



Ég var að endurupplifa Norwich um daginn.... jiminn hvað mig langar á markaðinn!

Jæja.... ætli ég fari ekki að reyna að minnka álag næstu vikna...
Tschüss
Kolfinna Snæbjarnardóttir

Upp og niđur kirkjutröppurnar...

06. október 2006 klukkan 02:10
Ji minn, leikfimi í dag var alveg rosaleg. Jæja krakkar, hlaupiði nú að löggustöðinni. Já við gerðum það. Hlaupiði svo að Hótel KEA. Já. Og svo upp og niður krikjutröppurnar! Jisús! Og svo hoppa jafnfætis upp! Jisús Pétur María!
Meðan á þessu ferli stóð leið mér ekki sem best, ég upplifði mig í stöðugum ótta við það að lgúmmíappirnar bókstaflega gæfu sig, að ég mundi hreinlega hrynja í sundur og rúlla alla leið niður að KEA. Ég tók ekki þá áhættu, ég labbaði síðustu metrana....



Eftir tímann leið mér frábærlega! Alveg endurnærð og alles:) Vonandi mun mér enn líða þannig þegar ég vakna á morgun....

Ég pantaði 3 miða í leikhúsinu í dag. Ætlaði sko ekki að gera sömu mistök og í fyrra og kaupa ekki ársmiða. Ég sá svo eftir því þá.... svo: Mike Attack eftir viku, ég er strax farin að hlakka til:)

Hurru, ég er kannski að fara að kenna busunum stærðfræði á næstu vikum, það verður interesting... Tilbreyting að vera manneskjan sem skilur hvað er að gerast í tímum....

Er það svo ekki Palli um helgina? Jú, ég held það....

Hilsen, Kolfinna

Auglýsing

Háskóli Íslands

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...