Pæling

29. apríl 2007 klukkan 20:13
Ég hlustaði á bræður mína kíta um mjög áhugaverð "málefni" í dag. Málefnin voru tvö.

1. Þeir voru sko ekki sammála um það hvort flugur kynnu að telja eða ekki og voru sko ekki á því að vilja gefast upp, báðir töldu þeir sig hafa mjög sterkar sannanir. Þetta var gaman að hlusta á:þ
2.Þeir voru heldur ekki sammála um það hvort 1 árs börn eða hundar væru gáfaðari. Hundar geta hlýtt okkur mannfólkinu og gert allskyns hluti, en hvað gera 1ársingar gert? Þau þekkja ekki einu sinni sjálf sig í spegli. En þau eru samt menn. Ég held að þið pælið of mikið strákar;)

Kv.Kolfinna

P.S. Velkomnar heim ferðalangar:)

Hún á afmæli í dag

20. apríl 2007 klukkan 23:54

Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli í dag
Hún á afmæli hún Kolfinna
Hún á afmæli í dag

Hún er 19 ára í dag
Hún er 19 ára í dag
Hún er 19 ára hún Kolfinna
Hún er 19 ára í dag

Veiiii....:)

p

Ég væri nú alveg til í svona köku....


Kv.Afmælisbarnið:)

Leiserpeiser

13. apríl 2007 klukkan 15:34
Er ekki leiser málið í dag?
Jú ég held það.

Ég er búin að panta tíma í forskoðun hjá Sjónlagi. Ef allt gengur að óskum þar mun ég endanlega leggja gleraugun mín, ásamt öllu linsubrasi, á hilluna 13.júní:)

Ég er búin að velta þessari leiseraðgerð alvarlega fyrir mér í svona 3 vikur. Ég hef sveiflast alveg voðalega mikið á milli skoðana, en ákvað loksins í gær að kíla bara á þetta... Ég er ekki frá því að það sé komið smá stress í magann... Ég get ekki sagt að það heilli mig mikið að finna brunalykt af augunum á mér eða að blindast algjörlega í nokkrar sekúntur, hvað þá að láta skera ofan af hornhimnunni....
En hvað gerir maður ekki fyrir augun í sér:)

-Kolfinna

Auglýsing

Háskóli Íslands

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...