"Getur ástin lifađ ef hugsjónin deyr?"

27. nóvember 2007 klukkan 22:52

Það er svo gaman núna. Það er "ekkert" að gera akkúrat núna í skólanum (það er, engin skilaverkefni, próf eða fyrirlestrar á morgun eða hinn...) og ég er svo frjáls. Get verið að gera absúlút ekki neitt án þess að fá vott af samviskubiti, svona á lífið að vera;) Ég var að máta upphlutinn minn áðan, aw það var fjör. Ég er farin að hlakka svo mikið til að vera í þessari múnderingu á árshátíðinni á föstudaginn, þetta er svo þægilegt og pilsið er svo vítt og skemmtilegt og sveiflast svo skemmtilega þegar maður labbar:) Og svo er húfan náttúrulega ekkert nema töff;) Þetta verður svo frábært!

Við gerðum laufabrauð hjá Fanneyju frænku á sunnudaginn. Það var rosalega gaman að hitta alla og sjá hana Isabellu pínkulitlu frænku í fyrsta sinn, aw hún var svo mikið yndi:) Svo sýndi ég þvílíka takta þegar ég tefldi við 7 ára frænda minn, mér leist nú ekkert á blikuna fyrst um sinn en náði svo, eftir mjög mikið af klaufalegum mistökum, að skáka og máta. Þarna munaði mjóu, fjúff. En hann Kristófer lét þetta sko ekki á sig fá og pantaði aðra skák, sem við því miður náðum ekki að klára.

Hehe, ég verð að koma með góða sögu af Auðuni  bró sem hann sagði mér um daginn. Hehe. Þannig er mál með vexti að hann og félagi hans voru á rúntinum í Reykjavíkinni og lá leið þeirra til Hafnafjarðar. Eftir mikið af hringjum og krókaleiðum um Garðabæinn viðurkenndu þeir loks að þeir væru tíndir, og datt þess vegna í hug að stoppa og spyrja til vegar. E-ð sem karlmenn eiga mjög erfitt með að gera, ég var mjög stolt að heyra þetta. En já. Bensínstöð varð fyrir valinu og þar fundu þeir e-a gellu sem þeir spurðu. Hún var hinsvegar ekkert á því að svara, hló bara að þeim, sagði: "greyin mín" og labbaði svo burt. Hehehe. Hún hefur pottþétt haldið að þeir væru að testa nýja pikköpp línu eða e-ð... hehehe... Greyin litlu;)

Sögunni fylgir ekki hvort þeir komust nokkurn tímann til Hafnafjarðar eða ekki...

Godnat,
Kolfinna:þ

19. nóvember 2007 klukkan 19:16
Ég var að kaupa mér nýjan síma og það fyrsta sem ég geri þegar heim kemur er að missa hann í gólfið. Góð! Svo 2 mínútum síðar missti ég hann næstum því í gólfið. Hvað er í gangi?
Ég þurfti að nota 3 kredit og debet kort til að borga. Mér leið ofboðslega kjánalega;)

-kå

Amma mín og amma ţín...

18. nóvember 2007 klukkan 17:21
Á föstudaginn vígđi ég dróttskátana mína, borđađi ţrjá kálhausa, sat frammí fornlandrover ásamt 3 öđrum og spilađi korký ţar sem miklir hćfileikar komu í ljós. Á laugardaginn slökktum viđ ljósin svo viđ sćjum út í snjóstorminn og földum okkur svo undir borđi svo enginn gćti séđ okkur, máluđum piparkökur, lćstum suma úti, misskildum margt, fórum út í óveđriđ, elduđum grćnt spaghettí, 'spiluđum' glasa-takt-leikinn, urđum professional team í klasa-takt-leiknum, gerđum heiđarlega tilraun til kvöldvökuhalds, sáum glćsilega krókódíla-teiknihćfileika og spiluđum heilan helling. Í dag sá ég bíl útí Eyjafjarđará. Ég gerđi líka svo miklu meira... -Kĺ P.S. 'Enter-in' mín sjást ekki, hjálp!

Langar nćtur, ljósa, kalda daga...

13. nóvember 2007 klukkan 17:57
Ég er viss um ađ ţađ er svona ţemaviku-dćmi í gangi hjá kennurunum. Ţađ hangir pottţétt svona plagg uppá vegg á kennarastofunni međ lista yfir vikur skólaársins og sérstakt ţema merkt viđ hverja viku. Til dćmis held ég ađ ţema síđustu viku hafi veriđ eitthvađ á ţessa leiđ: "4.U má sofa til 10." Ţađ var gott ţema, ég var ađ fíla ţađ! Önnur ţemu sem mér hefur líkađ mjög vel viđ síđustu vikur eru til dćmis: "Engin stćrđfrćđiheimavinna" og "Engin próf" Sehr gut! Hins vegar er ţema nćstu viku ekki alveg ađ gera sig. Ţađ er: "Próf, verkefnaskil og fyrirlestrar." Til nánari útleggingar fyrir ţá sem ekki skilja ţetta alveg stendur međ smáu italic letri fyrir neđan: "Ţar sem nánast ekkert hefur veriđ ađ gera hjá 4.bekk náttúrufrćđibrautar er tilvaliđ ađ fara ađ huga ađ prófum, fyrirlestrum og verkefnaskilum. Ţessi vika er kjörin fyrir svoleiđis hugleiđingar svo endilega skelliđ öllu á hana. Allir. Öllu. Takk fyrir." Bleeeeh.... Kv.Kolfinna

Tom var ungur fjallabúi...

07. nóvember 2007 klukkan 23:03
4.U sótti um að fara í skálaferð í gær. Í dag fengum við játandi svar:) Á morgun leggjum við í'ann. Það verður keppnis. Ég hlakka til:)

Ég er í karmínunefnd.
Hvað ætli það feli í sér?

Mig langar í Gamla um helgina. Vonandi förum við. Ætli það sé nægur eldiviður uppfrá? Ég nenni ekki að bera spíturnar. En hvað gerir maður ekki fyrir smá hita í kroppinn;)

Ég var að horfa á Grey's Anatomy. Ég elska þessa þætti. Það eru samt allir svo leiðir og þunglyndir í þessum þáttum. Og þá sérstaklega Meredith. Hættu að vera svona mikill ræfill! Og hættu að vera leiðinleg við McDreamy. Við viljum hafa hann glaðan, ekki leiðan! Því þá verður hann svo óskaplega leiður.

Ég ætla að fara að reikna stærðfræði. Líkindaföll og vesen. Oj.

-Kolfinna

P.S. "Botnunar"- leikurinn er enn í fullu fjöri;)

Ţó ađ blási, hvíni, norđanvindar...

04. nóvember 2007 klukkan 23:00
Það er FRÍ hjá mér í fyrsta tíma á morgun. Yess!



Ég fór í keilu í dag í tilefni af Keilumóli Klakks. Já, móli. Kom sjálfri mér verulega á óvart og náði nokkrum fellum. Hvaða hvaða;) Við skulum samt ekkert minnast á skiptin sem ég náði ekki fellu... hehe... þá var snúningurinn minn nú ekki alveg að gera sig, neineinei. Og nb þá var ég ekki alltaf neðst... Bara í seinni umferðinni. Var svaka dugleg og var nr.3 (af 5 manneskjum) í þeirri fyrri. Góð;) Og þrátt fyrir þennan mjög svo sveiflukennda árangur minn stóð liðið mitt uppi sem sigurvegari. Hvílík glæsilegheit það. Litlu börnin voru nú ekki alveg sátt með að "fullorðna fólkið" væri talið með í keppninni. En svona er lífið börnin góð, ósanngjarnt. Mwhaha. Keilan var skemmtileg. Við fengum okkur svo vonda keiluhallarhamborgara á eftir. Það var ekki jafn skemmtilegt.

Þjónustan í keiluhöllinni er ekki alveg að gera sig. Mjög heillandi að láta grútmyglaða, áhugalausa, lata, þunna stráka afgreiða sig. Dæmi:

"Nei þið þurfið bara að vera á sokkunum. Það er svo mikið vesen að láta alla fá skó."
 Ég er ekki að grínast með þetta.

"Nei veistu, við getum ekki lagað brautina ykkar, þið verðið bara að spila þó að hún sé biluð."
Ég held nú ekki!

Við mökuðum tómatsósu neðan á diskana okkar í þessu tilefni. Mwhaha.

Kå - out

P.S. Getið þið botnað færslutitilinn?
(Spurningu sérstaklega beint að Ingu og Sigrúnu)

Einu sinni ţegar ég var á Rhodos...

02. nóvember 2007 klukkan 17:17

... fór ég upp á Akrapolis hæðina í Lindos. Þar uppi datt okkur í hug að ferðast með asna niður hæðina. Það varð að svona bittersweet mómenti. Ekki það að það hafi ekki verið gaman að sitja á asnanum, það var í raun alveg frábært, heldur var gaurinn sem fylgdi ösnunum okkar niður ekki alveg að meika'ða. Hann átti það til að stoppa og spjalla við vegfarendur, en þegar það gerðist (og það gerðist oft) héldu asnarnir okkar bara áfram, án allar leiðsagnar. Það, ásamt hengifluginu sem ég vil meina að hafi verið við hliðina á veginum sem við fórum niður, gerði það að verkum að ég varð hræddari en ég hef nokkurntímann verið! Ég upplifði einmitt þessa eftirsóttu hræðslutilfinningu aftur um daginn. Eða svona næstum því.

Ég fór nefnilega í kassaklifur. Ef þú veist ekki hvað kassaklifur er ímyndaðu þér þá svona litla rauða Egils-flöskuplastkassa. Staflaðu þeim svo upp um leið og þú kífur ofar og ofar. Ég var mjög efins með þetta áður en ég lagði í'ann. Var viss um að ég mundi vera eins og auli og detta áður en ég næði i 10 kassa, en stúlkukindin sem var á undan mér kláraði einmitt kassana sem við brúkuðum í þetta sinn, 16 talsins. Ég kom sjálfri mér verulega á óvart og var komin upp í 10 kassa á nó tæm. Þá fór ég að átta mig á hæðinni sem ég var komin í og á hverju ég stóð í þessari svaka hæð: Vaggandi, óstöðugum kassaturni. Ómæ hvað lofthræðslan laust mig á þessu augnabliki! Þrátt fyrir dynjandi hjartslátt og ofsahræðlsu náði ég að skríða upp 4 kassa til viðbótar áður en turninn féll og ég hékk eftir í lausu lofti, ótrúlega fegin því að Helgi hélt í hinn endann á bandinu. Mikið var þetta samt gaman. Enda allmörg ár síðan ég kassaklifraði síðast og lofthræðsla mín búin að aukast til muna á þessum árum...

Annars er það helst í fréttum að vetrarfríið langþráða í MA er hafið og af því tilefni er ég stödd á suðvesturhorni landsins. Kom degi og hálfum fyrr en planað var og er ansi sátt með það. 3 nætur í borginni eru mun gáfulegri heldur en ein. Ég er strax búin að versla mér peysu og bol. Mikið óskaplega elska ég Zöru mikið;)

Glæstar eru að byrja...
Rvíkur-rok-og-rigning-kveðja
Kolfinnur

Auglýsing

Háskóli Íslands

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...