Never knew I could feel like this...

30. október 2008 klukkan 19:24
Í skólanum í gær vorum við að tala um krakkana sem voru að sniffa gas við Bústaðarveginn um daginn, með mjög svo slæmum afleiðingum. Talið barst að því hvað okkur finnst glórulaust að sniffa gas, og einn bekkjarbróðir minn sagðist einmitt frekar vilja vera skotinn í öxlina heldur en að taka þá áhættu sem fylgir gassniffi. Þá sagði annar: "Þú mundir nú ekki vilja vera skotinn í plexusinn...", og glotti við tönn.
- allir sprungu úr hlátri. Hahahaha.

Það er alveg rosalegt hvað við erum farin að hlægja að hallærislegum innanhússbröndurum;)

Annars er ég ekki sátt við það að enginn viti hvaða lag þetta er hérna á undan, hlustar enginn á JetBlackJoe eða?

En já. Ég ætla að halda áfram að horfa á Ísland að komast á EM2009:)
Og svo fara í sund og borða köku.

You were always on my mind...

27. október 2008 klukkan 19:34
Crap.
Ég er komin með þá svakalegustu siggkúlu á löngutöngina sem ég hef nokkurn tímann séð. Og eins sniðug og ég er þá fór ég að kroppa í hana um daginn án þess að átta mig á því hvaða afleiðingar það hefði í för með sér: Sár á siggkúlunni. Og vegna þessa sárs finn ég til í puttanum alltaf þegar ég skrifa, nú, eða lita (listahæfileikar manns koma sko mjög vel í ljós þegar maður er að læra anatómíu: teikna bein, lita æðar og vöðva og sån;p) Mikið hlakka ég ekki til að fara að glósa á skrilljón í tíma hjá ElluKollu á morgun.

Það liggur við að að ég geti sagt að þetta sé einn af hápunktum lífs míns undanfarnar vikur. Nei, þá væri ég að ljúga.

En ein af eftirminnilegustu stundum síðustu daga var klárlega þegar við Theó vorum að reyna að rata heim til Ingu bekkjarsystur á laugardagskvöldið (til að fagna sigri 1.árs á fótboltamóti FL:D). Ég lærði rosalega margt um sjálfa mig það kvöld. Til dæmis það að ég tek ekki bestu ákvarðanirnar í sambandi við akstur. Haha. Ég náði held ég að brjóta næstum allar umferðarreglurnar (keyra yfir á rauðu, aka í öfuga átt á einstefnu, taka u-beygju, vera "föst" þvert á götu og ég veit ekki hvað og hvað) á því 30 mínútna tímabili sem við vorum að hringsóla í Vesturbænum. Og svo keyrði ég líka næstum því í hliðina á bíl því ég hélt að hann væri á þarnæstu akgrein, en svo kom á daginn að hann var á næstu akgrein. Úps;) Þá einmitt fylltist svipurinn á Theó af raunverulegri skelfingu. Ég veit ekki hvort hún þorir uppí bíl með mér aftur;) Svo í gær komst ég líka að því að ég veit ekkert um bílinn sem ég get kallað minn. Reyndar komst ég ekki að því, ég vissi það fyrir. Komst bara betur að því. Eftir að hafa litið út fyrir að vera mjög ljóshærð þegar ég opinberaði það að ég vissi ekki hvar FastForward takkinn á kassettutækinu í bílnum mínum væri (og virkilega meint það) hef ég tekið þá ákvörðun að ef ég er ekki viss með eitthvað í sambandi við þennan bíl, finn ekki einhvað sem er á augljósum stað og svona, þá ætla ég að fá hjálp frá fyrrverandi eiganda bílsins, en ekki frá fólki sem hlær að mér;) Ég hef klikkað of oft á því. Góð ákvörðun þarna á ferð Kolfinna. Góð ákvörðun.

Annars hefur einbeitingarleysi hrjáð mig alveg svakalega síðustu daga. Ég á alveg fáránlega auðvelt með að horfa útum gluggann á lesstofunni á Læknagarði með iPodinn í eyrunum og láta mig dreyma í staðinn fyrir að gera gáfulega hlutinn: lesa mjög svo fróðlegu bókina sem liggur fyrir framan mig. Sem er ekkert alltof sniðugt sko. Og ég hef ekki tíma til að láta þetta verða seinnitímavandamál, því það er svo margt annað sem er núþegar orðið seinnitímavandamál. Góð ég. Mwhaha. Dagdraumar eru bara svo ótrúlega skemmtilegir:D
Þetta reddast. (einmitt það sem ég ætti ekki að hugsa mtt atburða síðustu vikna hérna á fróninu - haha.)

Fyrir utan þetta einbeitingarleysi er búið að vera ótrúlega gaman síðustu daga. Ég er búin að synda alveg nokkra kílómetra með stelpunum í nokkrum sundferðum uppá síðkastið, komast að því að ég sökka ekki algjörlega í keilu, horfa á Grey's, borða gómsæta skyrköku, sofa 11 tíma samfleytt og fara í nokkra ótrúlega skemmtilega "lík"-tíma í verklegu í skólanum. (lík = flegnir 30 ára gamlir partar af manneskjum) Sæll- það er svo gaman að geta skoðað vöðvana og taugarnar og æðarnar og að geta potað og alles sjálf. Svoooo gaman. Reyndar er lyktin ekkert alltof góð en hún er nú farin að venjast. En já, þetta er svo ótrúlega gaman:)

Ég er að fara norður næsta föstudag. Heim í snjóinn. Ég hlakka til. Broskall. Samt ekki broskall því ég hef eiginlga ekki tíma til þess, þarf bara að sinna þessu blessaða erindi. Ég ætla suður strax aftur á laugardaginn, helst fyrir hádegi. Svona til að drepa ekki samviskuna. Tímaskortur hrjáir mig. En eins og ég sagði, þetta reddast.

So long - Kolfinnur

P.S. Ég er svo viss um það að Gugga er ekki farin yfir móðuna miklu ;)

Fađir afa míns er...

12. október 2008 klukkan 18:46

Eigum við að ræða þennan lakkrís eitthvað? Auðunn var að selja mér þennan dýrindis poka af íslenskum lakkrís til styrktar honum sjálfumog það var bara ekkert aftur snúið eftir að pokinn var opnaður;þ Ég er orðin gjörsamlega háð þessu, vá hvað þetta smakkast mun betur en fyrir 2 árum þegar ég var að selja þetta...:D

Bræður mínir voru semsagt í bænum um helgina, og það var svoooona gaman:)

En að öðru. Ég er loksins, loksins byrjuð að læra eitthvað sem mig virkilega langar til að læra og eitthvað sem tengist læknisfræði beint í æð, ekki með krókaleiðum eins og efnafræðin. Nefnilega anatómíu:D Sæll, hvað þetta er skemmtilegt. Svooo skemmtilegt:) En sjittfokk erfitt og endalaust mikil vinna. Og mér sem fannst lífræna efnafræðin strembin. Hún var bara sumarfrí held ég að ég geti sagt:s Enjá, hugsum um þetta skemmtilega:) Á fimmtudaginn byrjuðum við að læra beinin í hendinni. Scapula, humerus, ulna, radius, clavicula og þetta. Og vöðvana og sinarnar líka og bara allt. Ómæ. En vá svo gaman:) Os pisiforme (piss´í form) er uppáhalds beinið mitt núna. Og fossa olecranon (Óli krani) er uppáhalds dældin mín. Svo gaman:)

Svo erum við líka í fósturfræði núna. Nema það að kennarinn (sem er btw margfalt skemmtilegri en gömlu kennararnir okkar!) er búin að vera að tala um allt nema fósturfræði næstum alla síðustu viku. Við einmitt vissum ekki alveg hvað við áttum að gera af okkur eftir fysta tímann, hvaða bók við ættum að opna eða hvað við ættum að gera af okkur til að læra fyrir þetta fag. Það er ekkert alltof skemmtilegt. En við förum í fyrstu viku fórsturþroskans á morgun svo það hlýtur að vera að það tengist fósturfræðibókinni minni eitthvað... :)

Oktoberfest var um helgina og vá það var ótrúlega gaman:D Ég var reyndar í glasi aðeins of mörg kvöld í síðustu viku sem sagði svona kannski smá til sín en Oktoberfest er nú bara einusinni á ári;) Aw það var gaman. Og ég vann aðalvinninginn í þýska lottóinu - score. Ég setti inn myndir á facebook, og váhá ég hló svo mikið að þessum myndum. Mæli eindregið með þeim, sérstaklega þeirri þar sem Theódóra ownar algjörlega;)

En já skólinn. Ég fór á læknagarð áðan og friðaði samviskuna í fjóra klukkutíma. En svo kom ég heim og er farin að hafa áhyggjur af því að verða mér til skammar í verklegu í fyrramálið:s En fokk itt... Þá bara verð ég mér til skammar. Það verður aldrei verra en það;)

- Frk.Stud.Med.

Auglýsing

Háskóli Íslands

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...